Finnur Aðalbjörnsson, eigandi Skógarbaðanna á Akureyri, segist nær orðlaus yfir áætlunum ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24%. „Við erum að borga 700 krónur per gest til ríkisins og mér finnst það vel í lagi, það er ekki eins og þeir hafi komið að þessari uppbyggingu,“ segir Finnur sem var gestur í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Með breytingunni hækki greiðsla á hvern gest um 800 krónur svo greiða þurfi um 1500 krónur til ríkisins á hvern gest. Hækkun sem lendir á heimamönnum Finnur segir að vel hafi gengið að koma Skógarböðunum af stað en þau opnuðu vorið 2022. „Auðvitað gengur ágætlega í þessum bransa en ég veit ekki um neinn sem hefur hagnast á því eða rekið arðbært fyrirtæki með því að vera með allt lóðrétt niður um sig,“ segir hann. „Það má þakka því góðri aðsókn heimamanna,“ segir Finnur sem tekur fram að um 30–40% þeirra sem koma í lónið séu erlendir ferðamenn. „Við vitum ekkert um þessa ferðamenn, hvort þeir halda áfram að koma eða hvað, en gestirnir okkar halda vonandi áfram að koma,“ segir hann. Lítill sem enginn fyrirsjáanleiki Finnur gagnrýnir þá að engan fyrirsjáanleika sé í málinu þar sem fyrirhugaðar hækkanir á sköttum beri skjótt að. Þá komi hækkunin enn verr við fyrirtæki í ferðaþjónustu í minni byggðarkjörnum líkt og á Egilsstöðum eða Húsavík sem reiði sig enn frekar á komu ferðamanna. „Í okkar tilfelli erum við að fjárfesta fyrir sex og hálfan milljarð hér á svæðinu, síðast í hóteluppbyggingu,“ segir Finnur. Notaður sé rekstrarhagnaður í Skógarböðunum við uppbygginguna. „Þetta er alveg víðáttugalið, ég þakka guði mínum að þetta fólk þarna á Alþingi sé ekki að reka fyrirtækið mitt, ég held að það myndi ekki ganga vel,“ segir Finnur. „Við erum eiginlega bara orðlaus yfir þessu hérna. Við erum búin að setja arðgreiðslubann á félagið okkar í 7 til 8 ár. Til að nota þessar krónur sem verða í afgang, það fer allt í uppbyggingu og til þess að búa til störf,“ segir Finnur sem telur að endurskoða verði allan rekstur félagsins eftir þetta. „Ríkisstjórnin sagði nú einhvern tímann að hún ætlaði að styðja við innviðauppbyggingu úti á landi, hún hefur ekki gert það, bara þvert öfugt,“ segir Finnur sem telur betur að málum staðið í Noregi. „Þar er verið að hjálpa öllum ferðaþjónustufyrirtækjum enda eru Norðmenn búnir að taka algjörlega fram úr okkur í vetrarferðamennsku því þar er verið að hjálpa fólki að koma þessum ferðaþjónustufyrirtækjum á laggirnar,“ segir Finnur. Eigandi Skógarbaðanna á Akureyri segir fyrirhugaða hækkun á virðisaukaskatti á baðlón helst leggjast á heimamenn þar sem þeir séu meirihluti gesta. Ómögulegt sé að reka ferðaþjónustufyrirtæki án fyrirsjánleika í aðgerðum stjórnvalda.