Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lækka VSK á dælu og vakta verðlag á „verðlækkunar­sumri“

Read Full Article →

Ríkisstjórnin hyggst lækka virðisaukaskatt á eldsneyti af dælu tímabundið úr 24% í 11%. Þetta var kynnt á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í hádeginu þar sem kynntar voru tímabundnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar til að hemja verðbólgu. Gert er ráð fyrir að aðgerðirnar taki gildi 1. maí og renni út 31. ágúst. „Markmið aðgerðanna er að fletja kúfinn vegna hækkana, draga úr áhrifum þessara olíuverðshækkana [vegna átaka við Persaflóa],“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. „Með þessu vilja stjórnvöld leggja sitt af mörkum og setja fordæmi fyrir atvinnulífið til að stemma stigu við verðhækkunum. Vonandi verður þetta líka áskorun til fleiri þarna úti í samfélaginu að við förum út í verðlækkunarsumar, að okkur takist að hemja verðbólguna í sumar af því að það er svo mikið í húfi.“ Boða vöktun á verðlagi Jafnframt boðaði Kristrún að ríkisstjórnin stefni að vöktun á verðlagningu. „Þetta verður gert með tímabundnu lagaákvæði sem skyldar söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og felur Samkeppniseftirlitinu að vakta að þetta sé gert. Þetta er lykilatriði upp á trúverðugleika þessara aðgerða og tryggja að þetta raunverulega skili sér í verðlækkununum. Ég treysti því og trúi að þetta verði ekkert vandamál og það þurfi ekkert að nýta þetta ákvæði, en þetta skiptir máli engu að síður.“ Í þessum efnum hyggst ríkisstjórnin einnig styrkja verðlagseftirlit Alþýðusambandsins um 15 milljónir króna „til að hafa sérstakt verðlagseftirlit í sumar með verðlagningu á öllum helstu tegundum dagvöru og þjónustu“. Hálfur milljarður í fjölgun hleðslustöðva Síðasta aðgerðin felur í sér 500 milljóna króna átaki til að fjölga hleðslustöðva um land allt. Kristrún sagði þessa aðgerð snúa að því að Ísland verði minna háð eldsneyti til lengri tíma.

Share this article