Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,4% í 3,1 milljarðs króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Mesta breytingin var á gengi hlutabréfa Skaga sem hækkaði um 3,8% í 150 milljóna króna veltu. Gengi félagsins stendur nú í 19 krónum á hlut. Hækkunin fylgir í kjölfar þess að Skagi tilkynnti eftir lokun markaða í gær um að stjórn félagsins hefði ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar þar sem félagið mun kaupa eigin bréf fyrir allt að 750 milljónir króna. Sjá einnig Skagi að hefja 750 milljóna endurkaup Gengi Skaga lækkaði um 3,7% í gær sem má rekja til þess að samrunaviðræðum félagsins var slitið um helgina eftir að Íslandsbanki fór fram á „verulegar breytingar“ á gagngjaldi í viðskiptunum. Auk Skaga hækkaði hlutabréfaverð Amaroq og Alvotech um meira en 2% í dag. Gengi Amaroq, sem hefur sveiflast talsvert síðustu vikur, stóð í 187 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar. Gengi Alvotech, sem náði í gær lægstu lægðum í 494 krónum, er komið upp í 506 krónur. JBT Marel lækkar eftir uppgjör Mesta lækkunin var á gengi hlutabréfa JBT Marels sem féll um 3% í 167 milljóna króna veltu og stóð í 19.500 krónum við lokun Kauphallarinnar. Félagið birti ársuppgjör í gærkvöldi, þar sem greint var frá 6,6 milljarða króna hagnaði á fjórða ársfjórðungi. Sjá einnig Hagnaður á síðasta fjórðungi og spá 5-7% tekjuvexti Auk JBT Marel lækkaði gengi hlutabréfa Eimskips, Skeljar og Icelandair um meira en 1% í dag.