Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Útgerðarfélögin hækka um 5-6%

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,4% í 3,7 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Hlutabréf átta félaga hækkuðu í verði í viðskiptum dagsins og fjórtán lækkuðu. Mesta breytingin var á gengi útgerðarfélaganna þriggja sem hækkaði um 4,9-6,1% og hækkaði markaðsvirði félaganna samtals um rúmlega 25 milljarða króna. Síldarvinnslan hækkaði mest eða um 6,1% í 120 milljóna króna veltu og stendur gengi félagsins nú í 106 krónum á hlut. Gengi félagsins var síðast hærra 11. mars sl. Hlutabréfaverð Brims hækkaði um 5,8% í 390 milljóna króna veltu og stendur nú í 82 krónum á hlut. Þá hækkaði gengi Ísfélagsins um 4,9% í 60 milljóna króna veltu og stendur nú í 151 krónu á hlut. Þess má geta að greiningarfyrirtækið Jakobsson Capital birti á föstudaginn verðmat á Síldarvinnslunni þar sem verðmatsgengi félagsins var hækkað um 17% í íslenskum krónum, upp í 93,6 krónur á hlut. Hækkunin skýrist einkum af hagfelldum ytri skilyrðum og ágætis loðnuvertíð, eins og Innherji fjallaði um í gær. Hlutabréfaverð sjö félaga aðalmarkaðarins lækkaði um meira en 1% í viðskiptum dagsins. Þar af lækkaði gengi Nova mest eða um 3,2% í 20 milljóna króna veltu. Gengi Nova stendur nú í 3,87 krónum á hlut og er um 8% lægra en í upphafi árs.

Share this article