Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,2% í 3,5 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Fimmtán félög aðalmarkaðarins hækkuðu í viðskiptum dagsins og sex lækkuðu. Langmesta veltan, eða um 1,4 milljarðar króna, var með hlutabréf Íslandsbanka sem hækkuðu um 1,1% og stendur gengi bréfanna nú í 146 krónum á hlut. Alls hefur gengi bankans hækkað um 11,5% síðastliðinn mánuð. Hlutabréfaverð Skaga hækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 5,2% í 330 milljóna króna veltu. Gengi Skaga stendur nú í 18,2 krónum á hlut og hefur ekki verð hærra síðan í byrjun mars. Auk Skaga hækkaði gengi Alvotech, JBT Marels og Ísfélagsins um 2-3,5% í dag en velta með hlutabréfa umræddra fyrirtækja var fremur lítil. Gengi Icelandair hækkaði um 1,6% í 150 milljóna króna veltu og stendur nú í 0,9 krónum á hlut. Gengi Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, lækkaði mest að um 4,5% í 72 milljóna króna veltu. Þá lækkaði gengi Oculis um 3,1% í 81 milljónar króna veltu.