Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Icelandair hækkaði um 11,7% í dag

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,6% í 12 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Sautján af 27 félögum aðalmarkaðarins hækkuðu í viðskiptum dagsins, þar af hækkaði gengi níu félaga um 2% eða meira. Langmesta veltan, eða um 9,4 milljarðar króna, var með hlutabréf Íslandsbanka sem hækkuðu um 3,4% og stóð gengi bankans í 138,5 krónum á hlut við lokun markaðarins. Sjá einnig 9 milljarða viðskipti með Íslandsbanka Eins og Viðskiptablaðið greindi frá fóru fram 5,9 milljarða króna viðskipti með rúmlega 43,3 milljónir hluta á genginu 136,55 krónur á hlut kl. 14:25 í dag. Heimildarmenn blaðsins telja að Capital Group sé með viðskiptunum í dag búið að selja allan eða bróðurpart hlutar síns í Íslandsbanka. Icelandair hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 11,7% í 170 milljóna króna veltu. Gengi flugfélagsins stendur í 0,802 krónum á hlut og hefur ekki verið hærra síðan um miðjan febrúarmánuð. Gengið hefur nú hækkað um 14,6% frá því að það náði lægstu lægðum í 0,70 krónum á föstudaginn síðasta. Talsverðar sveiflur hafa verið á gengi félagsins undanfarna viku sem tengist miklum breytingum á heimsmarkaðsverði olíu. Verð á Brent Norðursjávarolíu fór í gærmorgun yfir 100 dali á tunnu í fyrsta sinn en er aftur komið niður í 88 dali á tunnu. Ítarleg umfjöllun verður í Viðskiptablaðinu á morgun um áhrif olíuverðs á rekstur Icelandair. Gengi Eimskips hækkaði næst mest eða um 4,8% í ríflega 30 milljóna króna veltu og stendur nú í 260 krónum á hlut. Þá hækkaði gengi Oculis um 3,2% og Amaroq um 2,9%. Hlutabréfaverð tveggja félaga lækkaði í viðskiptum dagsins. Gengi fasteignafélagsins Reita lækkaði um 1,5% í 282 milljóna króna veltu og stendur nú í 127 krónum á hlut. Gengi félagsins hefur lækkað um 1,5% í ár. Þá lækkaði gengi Símans um 1,4% í 130 milljóna króna veltu og stóð í 13,7 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar. Gengi Símans er um 6% lægra en í upphafi árs.

Share this article