Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair eina félagið sem hækkaði

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,4% í 2,4 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Langmesta veltan, eða um einn milljarður, var með hlutabréf Íslandsbanka sem lækkuðu um 0,7% og stendur gengi bankans nú í 134 krónum á hlut. Talsverðar lækkanir hafa verið á hlutabréfamörkuðum víða um heims vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum og áhrifa þeirra. S&P 500 vísitalan hefur þannig lækkað um meira en 0,5% það sem af er degi, Europe Stoxx 600 um 0,7% og FTSE 100 um 0,4%. Málmleitarfélagið Amaroq lækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 5,4% í 116 milljóna króna veltu. Gengi Amaroq stendur nú í 175 krónum á hlut. Auk Amaroq lækkaði gengi Skeljar, Alvotech og Eimskips um 3% eða meira. Auk þess lækkaði gengi sex annarra félaga um 2% eða meira. Eina félagið í Kauphöllinni sem hækkaði í viðskiptum dagsins er Icelandair. Gengi flugfélagsins hækkaði um 2,6% í 123 milljóna króna veltu og stendur í 0,72 krónum á hlut. Til samanburðar fór það lægst niður í 0,67 krónur eftir opnun Kauphallarinnar en rétti úr kútnum þegar leið á daginn. Dagslokagengi Icelandair náði lægstu lægðum í 0,70 krónum á hlut á föstudaginn síðasta.

Share this article