Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair og Eimskip lækka um 2%

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,55% í 1,5 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Langmesta veltan var með hlutabréf Íslandsbanka, eða 680 milljónir króna, en gengi bankans lækkaði lítillega log stendur í 145,4 krónum á hlut. Eimskip og Icelandair lækkuðu mest af félögum Kauphallarinnar í dag eða um 2,2-2,3% í ríflega 65 milljóna króna veltu hjá hvoru félagi um sig. Gengi Icelandair stendur nú í 0,88 krónum á hlut og hlutabréfaverð Eimskips í 256 krónum. Lækkun á gengi hlutabréfa félaganna gæti tengst því að heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað um meira en 3% í dag. Verð á framvirkum samningum með Brent hráolíu fóru aftur yfir 100 dali á tunnu í dag. Donald Trump tilkynnti í gær um að hann myndi framlengja vopnahlé við Íran þar til ríkin tvö hafa náð framgangi í viðræðum um friðarsamkomulag. Hann bætti við að Bandaríkin myndu halda áfram að beita hafnbanni á Írans þar til klerkastjórnin. Olíuverð lækkaði fyrst um sinn en hækkaði aftur þegar greint var frá því að árásum Írana á þrjú skip sem voru á ferð um Hormússundið. Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar, eða um 2% í 10 milljóna króna veltu. Gengi Beru stendur nú í 15,2 krónum á hlut.

Share this article