Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair lækkað um 12,5% á rúmri viku

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,1% í 2,1 milljarðs króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Mesta breytingin varð á gengi Icelandair sem lækkaði um 3,7% í 60 milljóna króna veltu og stendur gengi flugfélagsins nú í 0,805 krónum á hlut. Alls hefur gengi Icelandair, sem birtir uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung annað kvöld, lækkað um 12,5% frá því að það stóð í 0,92 krónum á hlut við lokun markaða föstudaginn 17. apríl síðastliðinn. Lækkun á gengi Icelandair má að líkindum rekja að stærstum hluta til hækkunar eldsneytisverðs. Verð á framvirkum samningum með Brent hráolíu hefur hækkað um meira en 3% í dag og stendur í 108,8 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Hækkun olíuverðs í dag hefur verið rakin til þess að ekkert varð af fundum bandarískra og íranskra sendimanna um helgina um stríðið í Miðausturlöndum. Hlutabréfaverð Skaga, móðurfélags VÍS og Fossa fjárfestingarbanka, hækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 2,7% í 274 milljóna króna veltu. Gengi Skaga stendur nú í 19 krónum á hlut og hefur ekki verið hærra síðan um miðjan febrúarmánuð. Skagi birtir uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung á miðvikudaginn.

Share this article