Hlutabréfaverð Icelandair hefur lækkað um tæp 8% í fyrstu viðskiptum í morgun en ætla má að lækkunin sé tilkomin vegna hækkunar á olíuverði. Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði skarpt í morgun, á fyrsta viðskiptadegi eftir loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran um helgina. Verð á Brent-hráolíu, sem er alþjóðlegt viðmiðunarverð á olíu og er notað í flugvélaeldsneyti, hækkaði um 13% í fyrstu viðskiptum í morgun og fór hæst í 82,37 dali á tunnu í upphafi dags. Gengi Icelandair stendur í 0,70 krónum þegar þetta er skrifað og er því markaðsvirði félagsins komið undir 30 milljarða. Snorri Jakobsson, eigandi greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital, sagði í viðtali í Morgunblaðinu um miðjan febrúar að upplausnarvirði Icelandair numið um 50 milljörðum króna og því gæti skapast yfirtökuhætta. Í kjölfarið tók gengi flugfélagsins smá kipp en sú hækkun hefur gengið til baka. Gengi Icelandair hefur lækkað um 19% á árinu og 43% síðastliðið ár.