Hlutabréf Icelandair hækkuðu skarpt við opnun markaða í morgun og fóru um 10% upp í fyrstu viðskiptum dagsins, en kauphöllinn opnaði eins og venjulega klukkan 9.30. Gengið stendur í 0,79. Hækkunin kemur eftir miklar sveiflur í gengi félagsins undanfarna viku í eftir að olíuverð fór að hækka. Í gær hækkaði Brent Norðursjávarolía um 32% og lækkaði svo aftur um 33%. Ítarleg umfjöllun verður í Viðskiptablaðinu á morgun um áhrif olíuverðs á rekstur Icelandair.