Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hluta­bréf Icelandair í lág­flugi

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Icelandair lækkaði um tæp 9% í vikunni er gengið fór úr 0,918 krónum í 0,836 krónur. Stór hluti lækkunarinnar kom í við­skiptum dagsins, er bréfin féllu um 5% í 58 milljóna króna við­skiptum. Lækkunin kemur í kjölfar snarprar hækkunar í byrjun mánaðar en hluta­bréf Icelandair hækkuðu um 31% á fyrstu tveimur við­skipta­vikum mánaðarins er gengið fór úr 0,7 krónum í 0,918 krónur. Sveiflurnar í hluta­bréfum Icelandair má rekja til fregna af mögu­legum friðar­samningum í Persaflóa og hreyfinga á olíu­markaði. Þegar væntingar jukust um minni spennu á svæðinu og mögu­lega lægra olíu­verð studdi það við horfur flug­félaga, enda elds­neyti einn stærsti kostnaðar­liður í rekstri þeirra. Það virðist hafa ýtt undir hækkun hluta­bréfanna í byrjun mánaðarins. Í þessari viku hefur myndin hins vegar snúist við. Óvissa um fram­vindu mála og áfram­haldandi sveiflur í olíu­verði virðast hafa dregið úr bjartsýni fjár­festa og þrýst á gengi hluta­bréfanna á ný. Hluta­bréf Icelandair hafa því gefið eftir hluta af þeirri miklu hækkun sem varð fyrr í mánuðinum, eftir að markaðurinn hafði áður verðlagt inn væntingar um hagstæðari ytri aðstæður fyrir félagið. Sjá einnig Eldsneytisstaða Icelandair enn góð Hluta­bréfa­verð Ocu­lis lækkaði um 4% í afar litlum við­skiptum í dag á meðan gengi Al­vot­ech lækkaði um rúm 3%, einnig í lítilli veltu. Dagsloka­gengi Ocu­lis var 3.280 krónur á hlut á meðan dagsloka­gengi Alovtech var 422 krónur. Úr­vals­vísi­talan OMXI15 lækkaði um 0,59% og lokaði í 2.725,3 stigum. Heildar­velta á markaði nam 2,2 milljörðum.

Share this article