Gengi Icelandair hefur hækkað um rúm 5% það sem af er degi en í morgun bárust fregnir af því að Bandaríkin og Íran væru nálægt samkomulagi sem gæti dregið úr spennu í Mið-Austurlöndum og opnað á eðlilegri flutninga um Hormússund. Verðið á Brent-hráolíu hefur lækkað um tæp 9% og stendur í um 100 dölum þegar þetta er skrifað en tunnan stóð í 125 dölum fyrir örfáum dögum. Gengi Icelandair byrjaði daginn í 0,79 krónum á hlut og voru fyrstu og stærstu viðskipti dagsins tilkynnt við opnun með um 23,1 milljón hluti á því gengi sem samsvarar um 18,2 milljón króna viðskiptum. Heildarvelta þegar þetta er skrifað er 83 milljónir króna og stendur gengið í 0,808 krónum. Sjá einnig Olíuverð hrynur vegna vonar um samkomulag Þrátt fyrir töluverðar sveiflur á olíumarkaði hefur gengi Icelandair hækkað um 1,6% síðastliðinn mánuð. Í kauphallartilkynningu Icelandair í morgun var greint frá því að flugfélagið flutti 402 þúsund farþega í apríl, sem er 5% fjölgun frá sama mánuði í fyrra. Af farþegum mánaðarins voru 28% á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 46% tengifarþegar og 6% ferðuðust innanlands. Þá greindi Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, frá því að í ljósi átaka í Mið-Austurlöndum og snarpra hækkana á eldsneytisverði hafi félagið gripið til mótvægisaðgerða. Þær felist meðal annars í áframhaldandi kostnaðaraðhaldi, hækkun fargjalda og 2% samdrætti í flugframboði á öðrum ársfjórðungi, eins og áður hafi verið tilkynnt. Hann sagði einnig að frekari aðlögun á flugáætlun væri til skoðunar. Þar á meðal sé möguleg ákvörðun um að flýta útfösun Boeing 757-véla, sem eru ekki jafn sparneytnar og nýrri flugvélategundir. Sjá einnig Farþegum Icelandair fjölgaði um 5% í apríl