Verðmæti hlutabréfa í Icelandair hefur hækkað um tæp fimmtán prósent í morgun. Fram að því hafði verð þeirra lækkað jafnt og þétt síðustu daga, eftir að stríð hófst milli Bandaríkjanna og Ísraels annars vegar og Írans hins vegar. Olíuverð hækkaði mjög á heimsmörkuðum eftir það. Orkuverð hefur lækkað mikið í morgun eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að stríðið við Íran myndi ekki vara lengi enn. Gengi hlutabréfa í Icelandair stendur í 0,81 þegar þetta er skrifað og hefur ekki verið svo hátt í mánuð. Lægst fór það í 0,70 á föstudag. Þotur Icelandair á Akureyrarflugvelli á dögunum.RÚV / Kristófer Óli Birkisson