Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Innviðaráðherra áhyggjufullur og fundar með forstjóra Icelandair

Read Full Article →

Innviðaráðherra hefur áhyggjur af lækkun hlutabréfaverðs Icelandair. Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um tuttugu prósent frá áramótum. Í tilkynningu til Kauphallarinnar í haust kom fram að afkoma fyrirtækisins yrði undir væntingum í sumar. Tap á rekstri félagsins mætti rekja til hærri launa- og eldsneytiskostnaðar. „Ég hef miklar áhyggjur af stöðu Icelandair,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Hlutabréfamarkaðurinn er áhyggjuefni Eyjólfur segir það áhyggjuefni að íslenskur hlutabréfamarkaður sé ekki áhættusæknari en raun ber vitni. „Við getum ekki haft einn aðila sem á meira en helminginn af öllum markaðnum,“ segir Eyjólfur og á þar við eignarhald lífeyrissjóðanna á um 55% af hlutabréfamarkaðnum. Eyjólfur segist hafa miklar áhyggjur af alþjóðlegri samkeppnishæfni í flugi á Íslandi. 26 flugfélög eru með flugsamgöngur til og frá landinu og samkeppnin mikil. „Og Icelandair verður að taka virkan þátt í þeirri samkeppni.“ Það hefur þó ekki verið rætt innan ríkisstjórnarinnar hvort ríkið kaupi hlutafé í Icelandair. Mikilvægt sé að tryggja að félagið verði áfram í eigu Íslendinga. Ráðherra ætlar að funda með forstjóra Icelandair í vikunni. „Og bara fara yfir stöðuna.“ Þjóðaröryggismál að Icelandair sé í eigu Íslendinga Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir í aðsendri grein á Vísi að staða Icelandair sé áhyggjuefni og vill að ríkið stígi inn í og kaupi hlut í félaginu til að sporna við því að erlendir fjárfestar kaupi upp félagið og selji eignir þess. Eyjólfur segir að koma þurfi í veg fyrir að erlendir fjárfestar nýti sér lágt hlutabréfaverð félagsins nú og taki það yfir. „Við getum ekki orðið eitt allsherjarútibú þegar kemur að samgöngum til og frá Íslandi. Þetta er þjóðaröryggismál líka.“

Share this article