Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gefur lítið fyrir áhyggjur af stöðu Icelandair: „Reksturinn er algjörlega tryggur“

Read Full Article →

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, telur að Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, eigi að tala varlega um félög sem eru skráð á hlutabréfamarkað. Hann gefur lítið fyrir áhyggjur af stöðu félagsins. Icelandair sé í sterkri stöðu til að tryggja flugsamgöngur áfram, líkt og félagið hafi gert í rúmlega 90 ár. „Reksturinn er algjörlega tryggur. Við erum búin að vera að gefa út farþegatölur í hverjum mánuði. Þær hafa verið mjög sterkar fyrir janúar og febrúar. Ef við horfum á efnahagsreikning félagsins í lok síðasta árs þá var hann gríðarlega sterkur, lausafjárstaðan gríðarlega sterk og hefur aldrei verið sterkari í sögu félagsins. Þannig að rekstur og framtíð Icelandair er algjörlega trygg. En síðan er hlutabréfaverðið annað mál sem við höfum ekki stjórn á og ýmsir kraftar sem hreyfa það hjá okkur eins og öðrum.“ Rætt var við Boga Nils í Kastljósþætti kvöldsins. Viðtalið í fullri lengt má sjá í spilaranum hér að neðan. Forstjóri Icelandair telur það ekki vera hlutverk innviðaráðherra að velta fyrir sér hlutabréfaverði félaga sem skráð eru á markað. Hann gefur lítið fyrir áhyggjur af stöðu félagsins og segir reksturinn algjörlega tryggan.

Share this article