Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur af hlutabréfamarkaðnum

Read Full Article →

Gengi hlutabréfa í Icelandair er það lægsta í Kauphöllinni og hefur ekki verið lægra í fimm ár. Gengið hefur lækkað um tæp tuttugu prósent það sem af er ári. Snorri Jakobsson hagfræðingur óttast ekki að erlend félög geti tekið félagið yfir en segir stöðuna á hlutabréfamarkaði áhyggjuefni fyrir stjórnvöld. Markaðurinn hafi verið nánast óhreyfður í fjögur ár og fylgi ekki eftir alþjóðlegum hlutabréfasveiflum. Snorri segir það áhyggjuefni hverjir það eru sem eru að fjárfesta á íslenskum markaði. „Lífeyrissjóðirnir eiga 55% af hlutabréfamarkaðnum. Lífeyrissjóðirnir eru áhættufælnir fjárfestar og það er mikil áhætta að fjárfesta í flugfélagi.“ Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, segir í aðsendri grein á Vísi að staða Icelandair sé áhyggjuefni og vill að ríkið stígi inn í og kaupi hlut í félaginu til að sporna við því að erlendir fjárfestar kaupi upp félagið og selji eignir þess. Snorri telur ólíklegt að erlendir fjárfestar geri það. Stjórnvöld þurfi þó að fara yfir stöðu og virkni markaðarins í heild. Lítil þátttaka þar sé áhyggjuefni. „Það þarf svona að skoða heildarmyndina og þetta er eitthvað sem stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur af, hve staðan á hlutabréfamarkaði er.“

Share this article