Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Villuráfandi innviðaráðherra

Read Full Article →

Pistlaskrif stjórnsýslufræðingsins Hauks Arnþórssonar urðu tilefni furðufrétta sem enn sér ekki fyrir endann á. Þar viðraði hann áhyggjur sínar af því að erlendir aðilar nýti sér lágt hlutabréfaverð Icelandair til að kaupa upp félagið og selja eignir þess. Til að sporna við þessu vill hann að ríkið kaupi hlut í félaginu. RÚV taldi vitaskuld ástæðu til að taka málið lengra og spyrja hlutabréfagreinanda og ráðherra samgöngumála um áhyggjur eins síns helsta álitsgjafa. Sá fyrrnefndi, Snorri Jakobsson, komst vel frá sínu og kvaðst ekki óttast að áhyggjurnar yrðu að veruleika. Þá benti hann á að staða íslenska hlutabréfamarkaðarins sem heild sé áhyggjuefni fyrir stjórnvöld. Ekki verður það sama sagt um Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra sem afhjúpaði yfirgripsmikið þekkingarleysi sitt. Hann sagði hlutabréfaverðið vera of lágt og kvaðst hafa miklar áhyggjur af stöðu Icelandair. Þar að auki sagði hann hlutabréfamarkaðinn í heild sinni þurfa „að vera miklu áhættusæknari“. Þá tók hann einnig heilshugar undir áhyggjur Hauks. *** Morgunblaðið ræddi við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, til að leita viðbragða við ummælum innviðaráðherra. Eðlilega gagnrýndi hann ummælin og benti á að ráðherrar eigi að tjá sig mjög varlega um skráð félög á markaði. Að auki sagði hann árið hafa farið vel af stað hjá flugfélaginu og að fjárhagsstaðan sé sterk. Þessu til viðbótar mætti benda ráðherranum á að flugfélög með evrópskt flugrekstrarleyfi þurfa að vera í yfir 50% eigu aðila frá Evrópu, sem útilokar þá hið minnsta yfirtöku af hendi félaga utan álfunnar. Þá greiddi félagið 5 milljarða króna í umhverfisskatta á síðasta ári en tap síðasta árs nam 1,2 milljörðum. Með því að beita sér fyrir því að lækka þá byrði gæti Eyjólfur því stuðlað að bættri afkomu og um leið hærra hlutabréfaverði. *** Loks leyfir Týr sé þó að draga það í efa að nokkur erlendur aðili hafi áhuga á að festa kaup á eina starfsmannafélagi heims sem skráð er á hlutabréfamarkað og leysa það upp í frumeindir, eins og stjórnsýslufræðingurinn óttast svo mjög. Týr er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article