Gengi hlutabréfa Icelandair hefur lækkað um tæp 6% í fyrstu viðskiptum í morgun. Hlutabréfaverð félagsins hefur þannig gefið eftir tæplega helming af hækkun föstudagsins þegar fjárfestar bundu vonir við að spennu í Miðausturlöndum færi að slota og friðarsamkomulag væri í augsýn. Hlutabréf félagsins opnuðu í 0,86 krónum í morgun, eftir að hafa lokað í 0,918 krónum á föstudag. Á föstudag hækkaði gengi bréfanna hins vegar skarpt, úr 0,807 krónum í 0,918 krónur, eða um tæp 14% á einum degi. Með þeirri hækkun nam hækkun bréfanna um rúm 26% síðastliðinn mánuð. Lækkunin í morgun kemur á sama tíma og fjárfestar endurmeta áhættu eftir að vonir um friðarsamkomulag, sem kviknuðu á föstudag, virðast hafa dofnað. Olíuverð hækkaði snögglega í fyrstu viðskiptum í morgun eftir að Íran hótaði gagnráðstöfunum vegna haldlagningar Bandaríkjamanna á írönsku flutningaskipi. Sú þróun vegur gjarnan þungt fyrir flugfélög, þar sem hækkandi olíuverð getur þrýst upp eldsneytiskostnaði og þar með veikt afkomuhorfur. Samhliða þessu var einnig neikvæðari tónn á evrópskum hlutabréfamörkuðum í morgun, þar sem fjárfestar færðust aftur í varnarstöðu í ljósi vaxandi óvissu um framhald átakanna og mögulegar friðarviðræður. Sjá einnig Olíuverð hækkar og evrópsk hlutabréf á niðurleið