Hlutabréfaverð Icelandair lækkaði um 6% í kauphöllinni í dag en líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í morgun ákvað norræna flugfélagið SAS að segja upp samstarfssamningi við Icelandair og tekur uppsögnin gildi í lok þessa mánaðar. Félögin hafa átt í samstarfi frá árinu 2010. Samstarfið hefur einkum snúið að samkenndum flugum (e. code share) og gagnkvæmum réttindum fyrir vildarklúbbsfélaga. Þegar samstarfið var kynnt á sínum tíma sagði framkvæmdastjóri hjá SAS að samkomulagið tryggði þægilegri tengingar og hagstæðari fargjöld milli Íslands og Evrópu í gegnum tengimiðstöðvar SAS í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Talskona SAS segir við danska flugmiðilinn Checkin að flugfélagið hafi ákveðið að segja upp samningnum þar sem það sé að auka eigin flugumferð milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur. Í frétt FF7 er bent á að breytingin fylgi í kjölfar þess að Air France-KLM Group flugsamstæðan eignaðist 60% hlut í SAS. Þá stefni norræna flugfélagið að því að sækja fram í flugi til Norður-Ameríku og auka þar með við samkeppni við Icelandair. Gengi Sýnar lækkaði síðan um tæp 4% í lítilli veltu en hlutabréfaverð fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækisins hefur verið á miklu skriði eftir að greint var frá því að Sýn væri að selja Símanum alla vef- og útvarpsmiðla félagsins. Þrátt fyrir lækkun dagsins hefur gengi Sýnar hækkað um 21% síðastliðinn mánuð. Þá gaf gengi Oculis örlítið eftir og lækkaði um 2,5% í lítilli veltu. Dagslokagengi Oculis var 3.250 krónur á hlut. Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 1% og lokaði í 2.726 stigum. Heildarvelta í kauphöllinni nam 1,4 milljörðum.