Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Icelandair lækkar um 5,4%

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,4% í 2,1 milljarðs króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Nítján félög aðalmarkaðarins lækkuðu í viðskiptum dagsins og tvö lækkuðu. Hlutabréfaverð augnlyfjaþróunarfélagsins Oculis lækkaði mest eða um 6,8% í rúmlega 180 milljóna króna veltu og stendur nú í 3.820 krónum á hlut. Gengi félagsins fór í gær í fyrsta sinn yfir 4.000 krónur á hlut, nokkrum dögum eftir að tilkynnt var um samkomulag við FDA vegna lykil­rannsóknar á lyfinu Privosegtor við sjóntauga­bólgu. Sjá einnig Ocu­lis nær sam­komu­lagi við FDA um lykil­rannsókn Icelandair lækkaði næst mest eða um 5,4% í 90 milljóna króna veltu í og stendur nú í 0,73 krónum á hlut. Gengi félagsins var síðast lægra í lok mars. Lækkun á gengi Icelandair í dag skýrist sennilega af hækkun olíuverðs en heimsmarkaðsverð Brent hráolíu hefur hækkað um 3% í dag og stendur í 107,7 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Sjá einnig Icelandair telur flug­menn vera í óform­legum að­gerðum Þá sendi flugfélagið í gær frá sér yfirlýsingu þar sem það sagði margt benda til þess að flugmenn þess væru í óformlegum aðgerðum sem skýri seinkanir og aflýsingum á ákveðnum flugferðum. Gengi Alvotech lækkaði einnig um 3,6% í viðskiptum dagsins eftir að hafa hækkað um 13,4% í gær. Gengi félagsins stendur nú í 424 krónum á hlut. Líftæknilyfjafyrirtækið upplýsti í gær um að FDA hefði lokið reglubundinni úttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins í Reykjavík á föstudaginn. Sjá einnig Segja at­huga­semdir FDA ekki krefjast veiga­mikilla breytinga Alvotech sagðist gera ráð fyrir að FDA muni samþykkja umsóknir félagsins um markaðsleyfi fyrir nýjar hliðstæður á þessu ári. Fasteignafélögin Reitir og Heimar voru einu félögin sem hækkuðu í viðskiptum dagsins. Gengi Reita hækkaði um 2,6% í yfir hálfs milljarðs króna veltu og stendur nú í 118 krónum á hlut. Gengi Heima hækkaði um 1,7% í 40 milljóna veltu og sendur nú í 36,2 krónum. Sjá einnig Þrjú ný verk­efni skili 7% af tekjum á næsta ári Reitir birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung í gær, þar sem m.a. kom fram að rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu jókst um 15% milli ára. Heimar birtu uppgjör eftir lokun markaða í dag.

Share this article