Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,4% í 1,1 milljarðs króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Hlutabréf fjögurra félag hækkuðu í verði og tólf lækkuðu. Mesta breytingin varð á gengi hlutabréfa Icelandair, Amaroq og Alvotech sem lækkuðu um meira en 3% í dag eftir að hafa hækkað talsvert í gær. Sjá einnig Olíuverð hækkar um 3% Icelandair hækkaði mest en gengi flugfélagsins lækkaði um 4,2% í 32 milljóna króna veltu og stendur nú í 0,762 krónum á hlut. Amaroq og Alvotech fylgdu þar á eftir í 3,5-3,6% lækkun. Gengi Amaroq stendur nú í 161 krónu á hlut og Alvotech er í 436 krónum. Mesta veltan með bréf smásölufyrirtækjanna Smásölufyrirtækið Hagar hækkaði mest eða um 1,7% í tæplega 200 milljóna króna veltu. Gengi Haga stendur nú í 119 krónum á hlut og hefur nú ekki verið hærra síðan í lok febrúar. Mesta veltan, eða tæplega 400 milljónir króna, var með hlutabréf Festi. Gengi smásölufyrirtækisins stóð óbreytt í 333 krónum á hlut.