Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Icelandair og Al­vot­ech aldrei verið lægra

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% í 2,4 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Gengi Alvotech lækkaði mest af félögum Kauphallarinnar í dag eða um 4,1% í rúmlega 50 milljóna króna veltu og stendur nú í 464 krónum á hlut. Hlutabréfaverð Alvotech hefur nú lækkað um 26,6% í ár og hefur aldrei verið lægra frá skráningu árið 2022. Hlutabréfaverð Icelandair lækkaði um 2,4% í yfir 130 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag og stóð í 0,74 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar. Gengi Icelandair hefur nú lækkað um 17,6% í ár. Aðeins einu sinni áður hefur gengi flugfélagsins en það var 4. desember síðastliðinn. Sem þekkt er var útboðsgengi í ríflega 30 milljarða króna almennu hlutafjárboði Icelandair í september 2020 ein króna á hlut. Sjá einnig Elds­neytis­varnir Icelandair draga örlítið úr högginu Gera má ráð fyrir að lækkun á gengi Icelandair í dag skýrist að hluta af hækkun olíuverðs eftir loftárásir Bandaríkjanna og Ís­raels á Íran um helgina. Talsverðar lækkanir hafa verið á hlutabréfamörkuðum víða um heim í dag, sem rekja má til ofangreindra árása á Íran og áhrif þeirra. S&P 500 vísitalan hefur hækkað um 0,3% það sem af degi, Stoxx Europe 600 vísitalan hefur hækkað um 1,8% og FTSE 100 hefur hækkað um 1,3%.

Share this article