Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,65% í 2,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Tuttugu af 27 félögum aðalmarkaðarins hækkuðu í viðskiptum dagsins og þrjú lækkuðu. Þrjú félög hækkuðu um meira en 5% í dag. Alvotech hækkaði mest eða um 5,8% í rúmlega hundrað milljóna króna veltu og stendur gengi líftæknifyrirtækisins nú í 453 krónum á hlut. Hlutabréfaverð Alvotech hefur nú hækkað um 15% í vikunni. Icelandair hækkaði næst mest eða um 5,7% í 79 milljóna króna velt og stendur gengi flugfélagsins nú í 0,74 krónum á hlut. Sjá einnig Icelandair vill kaupa 49% í Fly Play Europe á Möltu Flugfélagið tilkynnti í morgun um að það hefði undirritað viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Þá hækkaði gengi Eimskips um 5,6% í 25 milljóna króna veltu og stendur nú í 256 krónum á hlut. Auk þess hækkaði gengi JBT Marels, Oculis og Beru um meira en 3% í dag. Hlutabréfaverð þriggja félaga lækkaði um meira en eitt prósent í viðskiptum dagsins; Hampiðjunnar, Amaroq og Nova.