Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Icelandair rýkur upp

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Icelandair hefur hækkað um 9% í fyrstu við­skiptum í morgun. Þegar þetta er skrifað stendur gengið í 0,76 krónum á hlut sem er þó um 15% lægra en í árs­byrjun. Eins og Við­skipta­blaðið greindi frá í morgun hefur Icelandair undir­ritað vilja­yfir­lýsingu um að hefja viðræður um mögu­leg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flug­rekstrar­leyfi þar. Fly Play Europe. Félagið var stofnað af ís­lenska flug­félaginu Play þegar það var í rekstri og er í eigu ís­lenskra fjár­festa, þar á meðal líf­eyris­sjóða. Sjá einnig Icelandair vill kaupa 49% í Fly Play Europe á Möltu Icelandair segir í til­kynningu til Kaup­hallarinnar að með kaupum á hlut í félaginu skapist aukin tækifæri fyrir leigu­flug, m.a. vegna víðtækari loft­ferða- og tvísköttunar­samninga sem malt­neska félagið hefur að­gang að. Í gærkvöldi greindi Við­skipta­blaðið einnig frá því að samninga­nefndir Icelandair og Félags ís­lenskra at­vinnu­flug­manna (FÍA) hefðu fundað í gær. En um var að ræða fyrsta form­lega fundinn í nokkurn tíma en full­trúar samninga­nefndanna hafa átt óform­lega fundi í vetur. Flug­menn hafa ekki enn lagt fram form­legar kröfur í viðræðunum. Sjá einnig Loks líf í kjara­viðræður flug­manna

Share this article