Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair vill kaupa 49% í Fly Play Europe á Möltu

Read Full Article →

Icelandair hefur undirritað viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Fly Play Europe Félagið var stofnað af íslenska flugfélaginu Play þegar það var í rekstri og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða. Icelandair segir í tilkynningu til Kauphallarinnar að með kaupum á hlut í félaginu skapist aukin tækifæri fyrir leiguflug, m.a. vegna víðtækari loftferða- og tvísköttunarsamninga sem maltneska félagið hefur aðgang að. „Jafnframt skapast tækifæri til aðgreiningar á flugflota félagsins þar sem flugvélar sem eru hugsaðar til lengri tíma í farþegaleiðakerfi Icelandair væru reknar á Íslandi, en aðrar vélar á Möltu. Með slíkri aðgreiningu verður rekstur Icelandair einfaldari og skilvirkari.“ Viljayfirlýsingin er sögð grundvöllur frekari viðræðna. Möguleg viðskipti, komi til þeirra, yrðu háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, endanlegri samningsgerð, samkomulagi veðtryggðra kröfuhafa þrotabús Fly Play hf. við skiptastjóra þrotabúsins og viðeigandi samþykktum, þar á meðal frá stjórnvöldum eftir því sem við á. „Flestöll flugfélög á okkar mörkuðum, sérstaklega í Evrópu, reka fleiri en eitt flugrekstrarleyfi sem gefur þeim aukinn sveigjanleika í sínum rekstri. Nái viðskiptin fram að ganga myndi það á sama hátt auka sveigjanleika og samkeppnishæfni Icelandair,“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair. „Að hafa aðgang að flugrekstrarleyfi á Möltu auk hins íslenska getur opnað ný og spennandi viðskiptatækifæri og á sama tíma stuðlað að einföldun á starfsemi okkar hér á Íslandi, sem skapar talsverð hagræðingartækifæri.“ Fly Play Europe var stofnað sem liður í endurskipulagningu Play, sem kynnt var í október 2024. Félagið fékk afhent flugrekstrarleyfi (AOC) frá flugmálayfirvöldum á Möltu í mars 2025. Hugmyndin var að Play Europe myndi sinna verkefnum í Evrópu fyrir aðra flugrekendur. Play var búið að tryggja sér langtímasamning um ACMI-leigu á fjórum farþegaþotum við SkyUp Malta til ársloka 2027. Sem þekkt er féll Play í lok september síðastliðnum. Kröfuhafar Play reyndu að semja um yfirfærslu á samtals átta vélum yfir til Fly Play Europe án árangurs. Maltneska félagið var því ekki með neina gilda flugvélaleigusamninga í kjölfar falls Play, eins og kom fram í tilkynningu frá skuldabréfaeigendum Play þann 6. október sl.

Share this article