Viðræður um kaup Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe eru á algjöru frumstigi, segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair, sem á von á því að þær standi næstu vikurnar. Margt þurfi að skoða en Bogi segir kaupin geta falið í sér tækifæri til aukins sveigjanleika í starfseminni og að einfalda flota Icelandair hér á landi. „Við erum fyrst og fremst að horfa á þetta fyrir leiguflugsstarfsemina okkar. Það eru til dæmis loftferðasamningar á Möltu, þeir eru með betra kerfi hvað það varðar en við Íslendingar. Það á líka við um tvísköttunarsamninga, þannig að það er ýmislegt í þessu sem eykur okkar möguleika. Þess vegna erum við að skoða þetta,“ segir Bogi. „En við verðum enn þá íslenskt flugfélag með að langmestu leyti íslenska starfsmenn, eins og í dag.“ Fly Play Europe er í eigu fjárfesta og lífeyrissjóða. Fyrirtækið var stofnað af Play, skömmu áður en það flugfélag varð gjaldþrota, og er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Forsvarsmenn Icelandair hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um kaup á 49% hlut í Fly Play Europe. „Þetta er tækifæri sem okkur bauðst og aðilar sem halda á þessu í dag komu til okkar og spurðu – eru þið til í að skoða þetta? Og niðurstaðan var að gera það og nú er framundan næstu vikurnar að fara í viðræður,“ segir Bogi. „Ef þetta verður að veruleika þá erum við svolítið að fylgja þróun sem er að eiga sér stað í geiranum.“