Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Segir kaupin í hag allra starfs­manna

Read Full Article →

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, telur að áformuð kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og með flugrekstrarleyfi þar, muni ekki hafa neikvæð áhrif á kjarasamningsviðræður. „Við erum að gera þetta af því að við teljum að þetta styrki félagið, styrki Icelandair til framtíðar. Annars værum við ekkert að þessu. Hagsmunir allra fara algjörlega saman þar. Þetta er frekar eitthvað sem við ættum öll að vera ánægð með,“ sagði Bogi í nýjum hlaðvarpsþætti Flugvarpsins. „Þetta er að auka sveigjanleika Icelandair, þetta er að auka möguleika til frekari tekjuöflunar og hugsanlega einföldunar í rekstri sem þýðir hagræðing. Það er bara verið að styrkja grunninn.“ Sjá einnig Loks að komast skriður á viðræður Icelandair tilkynnti í gærmorgun um að það hefði undirritað viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í Fly Play Europe. Icelandair sagði að með kaupunum skapist aukin tækifæri fyrir leiguflug, m.a. vegna víðtækari loftferða- og tvísköttunarsamninga sem maltneska félagið hefur aðgang að. Sjá einnig Icelandair vill kaupa 49% í Fly Play Europe á Möltu „Hvað varðar Möltu og loftferðasamninga, þar er tiltölulega sterk staða. Þeir eru með samninga við fleiri ríki en Ísland sem dæmi. Við erum að sjá ýmis félög setja upp svona starfsemi á Möltu eins og Air Atlanta. Þannig að fyrir Loftleiði getur þetta þýtt bara fleiri vörur á búðarborðinu og meiri sveigjanleika,“ sagði Bogi í Flugvarpinu. Hann bætti við að floti félagsins sé að taka talsverðum breytingum og færast nær því að vera eingöngu með Max og Airbus vélar. Icelandair hafði stefnt að því að taka 757 vélarnar úr flotanum eftir sumarið 2027. „Hugsanlega verður þetta tækifæri til þess að Loftleiðir reki 757 eitthvað áfram. Þá getur verið hagræði í því að einfalda málin hér á Íslandi og vera með hinar vélarnar áfram á Möltu. Þetta er eitthvað sem við munum skoða næstu vikurnar. Viðræðurnar eru að hefjast.“ Hvað með vinnuaflið, íslenska vinnuaflið á að aðgreina það líka? „Við þekkjum það eins og hjá Loftleiðum, þeir hafa verið að reka 757 vélarnar í þessum svokölluðu Heimsferðum, VIP-flugum, sem hafa gengið mjög vel – Loftleiðir og við hjá Icelandair erum búin að hasla okkur völl þar,“ svaraði Bogi. „Þar eru það áhafnirnar sem skipta gríðarlegu máli, okkar frábæru Icelandair-áhafnir. Það væri ekki mjög skynsamlegt að fara að skipta þeim út í því, sem dæmi, ef við færðum þá starfsemi hvað varðar flugvélarnar til Möltu. Áhafnirnar eru lykillinn að árangrinum þar.“ Flest evrópsku félögin með leyfi í fleira en einu landi Þáttastjórnandinn Jóhannes Bjarni Guðmundsson spurði hvort það væri til skoðunar að reka ákveðnar flugleiðir í farþegaleiðakerfinu út frá maltneska flugrekstrarleyfinu. Hann rifjaði upp að þegar Play stofnaði maltneska félagið hafi skapast umræða um hvort það stæði til að gera Tenrife-flugin út þaðan. „Nei, þessi frumskoðun okkar hefur ekki snúið að því,“ svaraði Bogi. „Við horfum á „base-inn“ hérna í Keflavík varðandi leiðakerfið okkar. Suðurflugin eru alveg mikilvægur þáttur þar, hvort sem það er Tenerife, Barcelona eða eitthvað þess háttar. Hub-inn er í Keflavík.“ Hann benti á að flest evrópsk flugfélög sem fljúga til Íslands séu með flugrekstrarleyfi á fleiri en einum stað til þess að búa sér til sveigjanleika í rekstri. Hvað varðar tækifæri fyrir leiguflug Loftleiða, dótturfélags Icelandair, sagði Bogi að félagið væri með langtímaleigusamninga við félög víða um heim, t.d. í Papúa Nýju-Gíneu og Úsbekistan. „Oft byrja slík verkefni sem ACMI. Það getur alveg verið hagræði í því að byrja slík verkefni frá einhverju öðru landi en Íslandi sem er með víðtækari loftferðasamninga og meiri möguleika. Það er allra hagur, allra starfsmanna, að við séum með fleiri vörur í búðinni.“ Bogi sagði aðdraganda viðræðnanna þann að eigendur Fly Play Europe höfðu samband við Icelandair til að kanna hvort félagið hefði áhuga á að kaupa minnihluta í maltneska félaginu. Fly Play Europe var stofnað sem liður í endurskipulagningu Play, sem kynnt var í október 2024. Félagið fékk afhent flugrekstrarleyfi (AOC) frá flugmálayfirvöldum á Möltu í mars 2025. Hugmyndin var að Play Europe myndi sinna verkefnum í Evrópu fyrir aðra flugrekendur í gegnum svokallaða ACMI-leigu. Sem þekkt er féll Play í lok september síðastliðnum. Kröfuhafar Play reyndu að semja um yfirfærslu á samtals átta vélum yfir til Fly Play Europe án árangurs. Maltneska félagið var því ekki með neina gilda flugvélaleigusamninga í kjölfar falls Play, eins og kom fram í tilkynningu frá skuldabréfaeigendum Play þann 6. október sl. Sjá einnig Kröfu­hafarnir búnir að ganga að öllum veðum Kröfuhafarnir sem tóku þátt í 2,8 milljarða skuldabréfaútboði Play í ágúst 2025 gengu að öllum veðum sínum í kjölfar falls Play. Þeir fengu þar með af­hent ís­lenska eignar­halds­félagið sem hélt utan um bæði Fly Play Europe Limited og Play Lit­huania UAB. Kröfu­hafarnir eignuðust einnig allar hug­búnaðar­lausnir Play.

Share this article