Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Icelandair vill komast í flugrekstrarleyfi Fly Play Europe

Read Full Article →

Forsvarsmenn Icelandair hafa undirritað viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um kaup á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe. Fyrirtækið var stofnað af Play, skömmu áður en það flugfélag varð gjaldþrota, og er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Fly Play Europe er í eigu fjárfesta og lífeyrissjóða. Í tilkynningu frá Icelandair til Kauphallarinnar segir að kaup á flugfélaginu, ef af þeim verður, skapi aukin tækifæri fyrir leiguflug. Þar er vísað til þess að maltneska félagið hafi aðgang að víðtækari loftferða- og tvísköttunarsamningum en Icelandair. Icelandair segir að með slíkum kaupum sé hægt að skipta flugflota félagsins í tvennt, annars vegar flugvélar sem eru reknar á Íslandi og sinna farþegaleiðakerfi Icelandair til lengri tíma, og hins vegar vélar á Möltu. „Viljayfirlýsingin er grundvöllur frekari viðræðna. Möguleg viðskipti, komi til þeirra, yrðu háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, endanlegri samningsgerð, samkomulagi veðtryggðra kröfuhafa þrotabús Fly Play hf. við skiptastjóra þrotabúsins og viðeigandi samþykktum, þar á meðal frá stjórnvöldum eftir því sem við á.“ Í tilkynningunni er vitnað til orða Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, um að kaupin gætu opnað ný viðskiptatækifæri og einfaldað starfsemina á Íslandi. Slíkt myndi skapa talsverð hagræðingartækifæri.

Share this article