Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Skaga og Ís­lands­banka hvort í sína áttina

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Skaga lækkaði um 4% strax við opnun markaða í dag á meðan gengi Ís­lands­banka hækkaði um tæpt 1%. Þegar þetta er skrifað stendur gengi Ís­lands­banka í 141 krónu á hlut á meðan gengi Skaga er í 18,3 krónum. Í skilmála­skjali félaganna sem var undir­ritað 6. október var miðað við 21,18 krónur á hlut í Skaga (gengið stóð í 19,7 þann 6. október) og 124 krónur á hlut í Ís­lands­banka (gengið stóð í 123,5 þann 6. október). Jafn­gildir þetta föstu skipti­hlut­falli upp á 0,1708 (21,18/124). Eins og kunnugt er slitu félögin sam­runa­viðræðum á laugar­daginn eftir að Ís­lands­banki lagði til breytingar á gagn­gjaldi sem Skaig hafnaði. Fram kemur í til­kynningum félaganna að frá undir­ritun skilmála­skjalsins hafi verið unnið að undir­búningi sam­runa, meðal annars með áreiðan­leikakönnun, sam­legðar­greiningu, undir­búningi til­kynninga til Sam­keppnis­eftir­litsins og Fjár­mála­eftir­litsins og drögum að sam­runa­samningi. Endan­legur sam­runa­samningur hefði þó þurft samþykki stjórna beggja félaga og síðar hlut­hafa. Sjá einnig Sam­runa­viðræðum Ís­lands­banka og Skaga slitið Að mati stjórnar Ís­lands­banka leiddu niður­stöður og greiningar úr ferlinu, þróun á markaðsvirði félaganna og væntan­legar auknar eigin­fjárkröfur Seðla­banka Ís­lands vegna eignar­halds banka á tryggingafélagi til þess að gera þyrfti breytingar á því gagn­gjaldi sem kveðið var á um í skilmála­skjalinu. Ekki náðist sam­komu­lag um slíkar breytingar og var því ákveðið að slíta viðræðunum. Í kaup­hallar­til­kynningu Skaga kom fram að stjórn félagsins harmi að sam­runa­viðræðum hafi verið slitið þar sem félagið meti það svo að sam­runinn hefði getað skilað „veru­legum ávinningi“ og skapað tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Skagi segir að í sam­komu­laginu frá 6. október hafi meðal annars verið kveðið á um gagn­gjald í formi til­tekins fjölda nýrra hluta í Ís­lands­banka og skil­greint ferli áreiðan­leikakannana, sam­legðar­greiningar og vinnu við sam­runa­samning, auk til­kynninga til Sam­keppnis­eftir­litsins og Fjár­mála­eftir­lits Seðla­bankans. Þar hafi einnig verið gert ráð fyrir mögu­legri aðlögun gagn­gjalds vegna efnis­legra at­riða sem kynnu að koma fram í áreiðan­leikakönnunum eða vegna hugsan­legra skil­yrða sam­keppnis­yfir­valda sem gætu haft áhrif á við­skipta­legar for­sendur. „Ís­lands­banki hefur nú lagt fram til­lögu sem felur í sér veru­legar breytingar á gagn­gjaldi, um­fram efnis­leg at­riði sem hafa komið upp í ferlinu. Stjórn Skaga telur að ný til­laga Ís­lands­banka rúmist ekki innan um­saminna skilmála og endur­spegli á engan hátt virði Skaga í sam­einuðu félagi. Aðilar hafa því sammælst um að fyrr­nefnt sam­komu­lag frá 6. október sé fallið niður og sam­runa­viðræðum slitið,“ segir í til­kynningu Skaga.

Share this article