Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa og Íslenskra verðbréfa, var slitið um helgina í kjölfar þess að stjórn Íslandsbanka taldi að forsendur samrunans hefðu breyst þannig að breyta þyrfti gagngjaldi sem lagt var upp með í skilmálaskjali. Í kauphallartilkynningu Íslandsbanka þar sem greint er frá viðræðuslitum er vísað til vænta aukinna eiginfjárkrafna Seðlabanka Íslands vegna eignarhalds bankans á tryggingafélagi, þróunar á markaðsvirði félaganna og niðurstaðna greininga úr samrunaferlinu. Skagi svaraði því til að Íslandsbanki hefði lagt fram „verulegar breytingar á gagngjaldi“ sem færu út fyrir umsamda skilmála og endurspegluðu „engan veginn“ virði Skaga í sameinuðu félagi. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var hluthöfum Skaga áfram boðinn 15% hlutur í sameinuðu félagi þótt gagngjaldið hefði verið lækkað í breytingartillögum Íslandsbanka. Þetta getur gengið upp á ýmsa vegu, því fjöldi nýrra Íslandsbankahluta sem þarf að gefa út til að ná 15% lokahlut getur breyst meðan á ferlinu stendur, til dæmis vegna endurkaupa, arðgreiðslna, gengisviðmiða og annarra leiðréttinga. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift