- What: Dispute between Íslandsbanka and Skaga over changes in data access from a 2025 agreement.
- Impact: Related to data access and ownership of assets.
Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa og Íslenskra verðbréfa, var slitið um helgina í kjölfar þess að stjórn Íslandsbanka taldi að forsendur samrunans hefðu breyst þannig að breyta þyrfti gagngjaldi sem lagt var upp með í skilmálaskjali félaganna frá 6. október 2025. Í tilkynningu bankans er vísað til vænta aukinna eiginfjárkrafna Seðlabanka Íslands vegna eignarhalds bankans á tryggingafélagi, þróunar á markaðsvirði félaganna og niðurstaðna greininga úr samrunaferlinu. Í tilkynningu bankans er vísað til vænta aukinna eiginfjárkrafna Seðlabanka Íslands vegna eignarhalds bankans á tryggingafélagi, þróunar á markaðsvirði félaganna og niðurstaðna greininga úr samrunaferlinu. Skagi svaraði því til að Íslandsbanki hefði lagt fram „verulegar breytingar á gagngjaldi“ sem færu út fyrir umsamda skilmála og endurspegluðu „engan veginn“ virði Skaga í sameinuðu félagi. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var hluthöfum Skaga áfram boðinn 15% hlutur í sameinuðu félagi þótt gagngjaldið hefði verið lækkað í breytingartillögum Íslandsbanka. Þetta getur gengið upp á ýmsa vegu þar sem fjöldi hluta sem þarf að gefa út til að ná 15% getur breyst. Ákvörðun Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands hins vegar um að íhuga að blýhúða regluverk í kringum banka sem eiga tryggingafélag undir lok árs 2025 hafði einnig töluverð áhrif. Áskrifendur geta lesið ítarlega umfjöllun Viðskiptablaðsins um viðræðuslit Skaga og Íslandsbanka hér .