- What: Merger negotiations between Íslandsbanki and Skaga have been terminated.
- Impact: The merger project will not proceed, but Íslandsbanki and VÍS, a subsidiary of Skaga, will continue their collaboration.
Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga hefur verið slitið, samkvæmt kauphallartilkynningu frá félögunum tveimur í dag. Viðræðurnar byggðu á skilmálaskjali sem félögin undirrituðu 6. október 2025, en nú hafa aðilar sammælst um að skilmálaskjalið falli niður og að samrunaverkefninu verði ekki fylgt eftir. Íslandsbanki segir að niðurstöður greininga úr ferlinu, þróun á markaðsvirði félaganna og væntar auknar eiginfjárkröfur Seðlabanka Íslands vegna eignarhalds banka á tryggingafélagi hafi kallað á breytingar á gagngjaldi til að verja hagsmuni hluthafa bankans en ekki hafi náðst samkomulag um þær. Skagi segir hins vegar að Íslandsbanki hafi lagt fram tillögu um verulegar breytingar á gagngjaldi sem rúmist ekki innan umsamdra skilmála og endurspegli ekki virði Skaga í sameinuðu félagi. Þrátt fyrir slit viðræðna segja félögin að halda áfram samstarfi Íslandsbanka og VÍS, dótturfélags Skaga. Fram kemur í tilkynningum félaganna að frá undirritun skilmálaskjalsins hafi verið unnið að undirbúningi samruna, meðal annars með áreiðanleikakönnun, samlegðargreiningu, undirbúningi tilkynninga til Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlitsins og drögum að samrunasamningi. Endanlegur samrunasamningur hefði þó þurft samþykki stjórna beggja félaga og síðar hluthafa. Sjá einnig Samruni með 22% álagi Að mati stjórnar Íslandsbanka leiddu niðurstöður og greiningar úr ferlinu, þróun á markaðsvirði félaganna og væntanlegar auknar eiginfjárkröfur Seðlabanka Íslands vegna eignarhalds banka á tryggingafélagi til þess að gera þyrfti breytingar á því gagngjaldi sem kveðið var á um í skilmálaskjalinu. Ekki náðist samkomulag um slíkar breytingar og var því ákveðið að slíta viðræðunum. Úr umfjöllun Viðskiptablaðsins í lok janúar um þróun á markaðsvirði félaganna tveggja. Íslandsbanki bendir jafnframt á að bankinn hafi nýlega kynnt uppfærð fjárhagsleg markmið sem tóku ekki mið af mögulegum samruna og standi því óbreytt. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að arðsemi eigin fjár verði umfram 13% til meðallangs tíma, auk þess sem bankinn hyggst vinna áfram að því að besta samsetningu eigin fjár á árinu 2026. Sjá einnig Ný stjórn muni endurskoða Skaga-viðskiptin Skagi segir tillögu Íslandsbanka ganga út fyrir umsamda skilmála Í sinni tilkynningu segir stjórn Skaga að hún harmi að þetta sé niðurstaðan og meti að samruninn hefði getað skilað „verulegum ávinningi“ og skapað tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka hafi verið í samræmi við stefnu Skaga um að taka þátt í nauðsynlegum breytingum á fjármálamarkaði, og félagið hafi séð skýr tækifæri til sóknar á öllum sviðum fjármálaþjónustu. Skagi segir að í samkomulaginu frá 6. október hafi meðal annars verið kveðið á um gagngjald í formi tiltekins fjölda nýrra hluta í Íslandsbanka og skilgreint ferli áreiðanleikakannana, samlegðargreiningar og vinnu við samrunasamning, auk tilkynninga til Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlits Seðlabankans. Þar hafi einnig verið gert ráð fyrir mögulegri aðlögun gagngjalds vegna efnislegra atriða sem kynnu að koma fram í áreiðanleikakönnunum eða vegna hugsanlegra skilyrða samkeppnisyfirvalda sem gætu haft áhrif á viðskiptalegar forsendur. Að mati stjórnar Skaga hafi vinna við þessa verkþætti gengið vel og verið „án teljandi efnislegra athugasemda“. Engu að síður hafi Íslandsbanki nú lagt fram tillögu sem feli í sér „verulegar breytingar á gagngjaldi“, umfram þau efnislegu atriði sem komið hafi upp í ferlinu. Skagi telur að ný tillaga rúmist ekki innan umsamdra skilmála og endurspegli ekki virði Skaga í sameinuðu félagi. Því hafi aðilar sammælst um að samkomulagið falli niður og slíta viðræðum. Sjá einnig Arðsemi undir markmiði „Íslandsbanki hefur nú lagt fram tillögu sem felur í sér verulegar breytingar á gagngjaldi, umfram efnisleg atriði sem hafa komið upp í ferlinu. Stjórn Skaga telur að ný tillaga Íslandsbanka rúmist ekki innan umsamdra skilmála og endurspegli á engan hátt virði Skaga í sameinuðu félagi. Aðilar hafa því sammælst um að fyrrnefnt samkomulag frá 6. október sé fallið niður og samrunaviðræðum slitið,“ segir í tilkynningu Skaga. Líkt og Íslandsbanki tekur Skagi fram að samstarf Íslandsbanka og VÍS hafi verið farsælt síðastliðið ár og að aðilar hyggist halda því áfram. Að lokum segir að forsvarsmenn Skaga muni nú beina kröftum sínum að innleiðingu stefnu félagsins um arðbæran vöxt á sviði trygginga, fjárfestingarbankastarfsemi og eignastýringar. Umbreytingarvegferðin hafi gengið vel og „gott gengi félagsins undanfarið“ beri þess merki, auk þess sem Skagi telji talsverð tækifæri felast í stöðu félagsins í núverandi umhverfi.