- What: Íslandsbanki's board proposes a dividend payment of 12.6 billion ISK at the bank's annual general meeting in March.
- Impact: The dividend is in line with the bank's dividend policy of paying 50 percent of the previous year's profit to shareholders.
Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Er það í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans um að greiða 50 prósent af hagnaði fyrra árs í arð til hluthafa. Þetta er meðal þess sem kemur fram í afkomutilkynningu bankans sem var birt í dag. Hagnaður af rekstri bankans árið 2025 nam 25,2 milljörðum króna og var arðsemi eiginfjár 11,2 prósent. Hreinar vaxtatekjur á árinu námu 52,5 milljörðum króna, sem er aukning um 11 prósent frá 2024. Hagnaður af rekstri nam 5,9 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði úr 43,6 prósentum árið 2024 niður í 42,4 prósent árið 2025. Hrein fjármagnsgjöld voru 922 milljónir króna á árinu 2025, borið saman við fjármagnsgjöld að fjárhæð 338 milljónum króna árið 2024. Hagnaður af rekstri nam 5,9 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025 og hreinar vaxtatekjur námu 12,4 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi og hækkuðu um 1.516 samanborið við fjórða ársfjórðung 2024.