Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,8% í hálfs milljarðs króna veltu það sem af er degi. Hlutabréfaverð tuttugu félaga hefur lækkað í morgun, en þar af hafa bréf tíu félaga lækkað um 2% eða meira. Hlutabréfaverð Oculis, Amaroq og Skeljar fjárfestingarfélags hafa lækkað mest eða yfir 3%. Gengi hlutabréfa Icelandair hafa lækkað um 1,4% í 50 milljóna króna veltu og stendur nú í 0,69 krónum á hlut. Til samanburðar náði dagslokagengi hlutabréfa flugfélagsins lægstu lægðum í 0,70 krónum á föstudaginn. Mikill órói er á fjármálamörkuðum vegna áhrifa stríðsátaka í Miðausturlöndum. Verð á Brent-hráolíu rauk upp fyrir 100 dali tunnan í morgun í fyrsta sinn frá árinu 2022. Sjá einnig Olían yfir 100 dali og órói á mörkuðum Europe Stoxx 600 hlutabréfavísitalan hefur lækkað um 1,5% í morgun og breska FTSE 100 hefur lækkað um 1,3%. SSE Composite vísitalan fyrir kauphöllina í Shanghai lækkaði um 0,7% í morgun, japanska Nikkei 225 vísitalan lækkaði um 5,2% og suður-kóreska vísitalan Kospi lækkaði um 6%.