Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Talsverðar sveiflur í Kauphöllinni

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,2% í 3 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinn í morgun. Ellefu félög aðalmarkaðarins hækkuðu í viðskiptum dagsins og ellefu lækkuðu. Mesta breytingin var á hlutabréfaverði Eimskips sem hækkaði um 5,2% í yfir hundrað milljóna króna veltu og stendur nú í 242 krónum á hlut. Gengi flutningafélagsins hefur því rétt aðeins úr kútnum eftir að hafa lækkað um 11% í síðustu viku. Gengi Amaroq hækkaði um 12% innan dags Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í morgun opnaði Kauphöllin rauð í morgun eftir lækkanir á hlutabréfamörkuðum í Asíu. Gengi hlutabréfa Amaroq, Icelandair og Alvotech lækkaði um meira en 3% í fyrstu viðskiptum. Þegar mest lét hafði gengi Amaroq lækkað um meira en 10% og stóð þá í 142 krónum á hlut. Gengi málmleitarfélagsins rétti hins vegar úr kútnum og stóð í 156 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar. Hlutabréfaverð Icelandair, sem fór lægst niður í 0,69 krónur fyrir hádegi, endaði daginn í 0,73 krónum á hlut. Gengi Alvotech hækkaði einnig aðeins þegar leið á daginn og stendur gengi félagsins nú í 433 krónum á hlut eftir 0,5% lækkun í dag. Dagslokagengi Alvotech hefur aldrei verið lægra. Gengi augnlyfjaþróunarfélagsins Oculis lækkaði mest af félögum aðalmarkaðarins eða um 2,6% í 70 milljóna króna veltu og stendur nú í 3.060 krónum á hlut. Dagslokagengi Oculis var síðast lægra um miðjan janúar síðastliðinn. Gengi Heima lækkaði einni um meira en 2% í dag, sem skýrist þó að stórum hluta af því að í dag er arðleysisdagur vegna arðgreiðslu upp á 0,4 krónur á hlut vegna rekstrarársins 2025.

Share this article