Úrvalsvísitalan hefur hækkað um tæp 3% í fyrstu viðskiptum í dag. Öll félög nema tvö á aðalmarkaði Kauphallarinnar hafa hækkað frá opnun íslenska markaðarins. Fjármálamarkaðir hafa tekið vel í samkomulag Bandaríkjanna og Írans um 2 vikna vopnahlé gegn opnun Hormússunds. Evrópska Stoxx Europe 600 vísitalan hefur hækkað um 3,4% í morgun. Japanska hlutabréfavísitalan Nikkei 225 hækkaði um meira en 5% í morgun, suður-kóreska vísitalan Kospi hækkaði um 6,9% og kínverska SSE Composite vísitalan hækkaði um 2,7%. Sjá einnig Trump samþykkir tveggja vikna vopnahlé gegn opnun Hormússunds Icelandair og Amaroq leiða hækkanir á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Gengi Icelandair hefur hækkað um 6,6% og stendur í 0,78 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Hlutabréfaverð málmleitarfélagsins Amaroq hefur hækkað um 6,4% og stendur nú í 166 krónum á hlut. Til samanburðar var dagslokagengi félagsins síðast hærra 18. mar síðastliðinn. Meðal annarra félaga sem hafa hækkað um meira en 3% í fyrstu viðskiptum í dag eru JBT Marel, Oculis, Eimskip, Reitir, Skel fjárfestingarfélag og Skagi.