Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Allt grænt í fyrstu við­skiptum

Read Full Article →

Það var jákvæðari tónn í fjár­festum í morgun en í gær er öll hluta­bréf í Kaup­höllinni byrjuðu daginn á hækkunum í fyrstu við­skiptum. Þegar klukkan var að ganga ellefu hafði úr­vals­vísi­talan OMXI15 hækkað um 1,12% í 2.703,72 stig og ekkert félag á aðallista lækkað frá opnun. Við­skipti hafa jafn­framt verið mun líf­legri en daginn áður en heildar­velta er nú þegar komin í 1,9 milljarða króna, sem er meiri velta en nam allri dags­veltunni í gær. Mest velta hefur verið með bréf í Ís­lands­banka, um 972 milljónir króna, og hafa bréf bankans hækkað um 0,76% þegar þetta er skrifað. Gengi Arion banka hefur hækkað um rúmt 1% í um 321 milljón króna við­skiptum það sem af er degi. Bera, móðurfélag Öl­gerðarinnar, leiðir hækkanir á markaði en hluta­bréf félagsins hafa hækkað um rúm 6% í morgun og standa í 16,10 krónum. Þar á eftir komu Nova með 2,84% hækkun og Festi með 2,70%. Þá voru einnig hækkanir í félögum á borð við Amaroq Minerals, Haga, Sjóvá, Skaga, Símann og Reiti. Hækkunin hefur jafn­framt verið nokkuð breið og því var ekki aðeins um fáein þunga­vigtarfélög að ræða heldur virtist jákvæðnin ná yfir stóran hluta aðallistans í upp­hafi dags. Þróunin hér heima var í samræmi við það sem sást á helstu mörkuðum er­lendis í morgun. Evrópskir hluta­bréfa­markaðir opnuðu al­mennt í grænu og fram­virkir samningar í Bandaríkjunum bentu sömu­leiðis til jákvæðrar opnunar vestan­hafs. Sjá einnig Fjár­festar héldu að sér höndum í Kaup­höllinni

Share this article