Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Víðtækar lækkanir í Kaup­höllinni

Read Full Article →

Það voru víðtækar lækkanir á ís­lenska hluta­bréfa­markaðnum í dag og voru nánast öll félög rauð eftir við­skipti dagsins í Kaup­höllinni. Úr­vals­vísi­talan (OMXI15) lækkaði um rúm 2% og lækkanirnar náðu yfir breiðan hóp félaga, allt frá fjár­mála­fyrir­tækjum og tryggingafélögum til iðnaðar- og vaxtarfélaga. Hluta­bréf málm­leitarfélagsins Amaroq Minerals leiddu lækkanir dagsins er gengi félagsins fór niður um tæp 7%. Dagsloka­gengið var 187 krónur eftir um 328 milljóna króna við­skipti. Heims­markaðsverð á gulli lækkaði í dag sam­hliða lækkunum á verðbréfa­markaði en fjár­festar leita venju­lega í gull þegar hluta­bréf eru að lækka. Sér­fræðingar á mörkuðum telja þó lík­legt að gull­verð hafi lækkað þar sem fjár­festar hafi neyðst til að selja gull­eignir til að mæta tryggingar­kröfum. Sjá einnig Verðbréf lækka veru­lega meðan átök harðna Banka­bréf með mestu veltuna Þótt lækkunin hafi verið al­menn voru tals­verð um­svif í stærri og virkari bréfum markaðarins. Arion banki lækkaði um 2,5% og lokaði í 194,5 krónum í 879 milljóna króna veltu. Ís­lands­banki lækkaði um rúm 2% og lokaði í 134 krónum eftir um 1,2 milljarða króna. Í smásölu­geiranum lækkaði Festi um tæp 3% eftir um 469 milljóna króna við­skipti. Dagsloka­gengið var 330 krónur. Hluta­bréfa­verð Öl­gerðarinnar lækkaði um 3% og lokaði í 16,10 krónur. Í trygginga­geiranum lækkuðu bæði Skagi og Sjóvá-Al­mennar tryggingar. Hluta­bréfa­verð Skaga lækkaði um rúm 4% og lokaði í 17,9 krónum. Sjóvá lækkaði einnig um 4% og lokaði í 40 krónum á hlut. Gengi Icelandair lækkaði um tæp 4% og var dagsloka­gengi flug­félagsins 0,71 króna á hlut. Verð á brent hráolíu, sem er meðal annars notað í flug­véla­elds­neyti, hækkaði um rúm 5% í dag og stóð tunnan í 80 dölum við lokun kaup­hallarinnar hér heima. Alþjóð­leg áhættu­fælni Hreyfingarnar eru í samræmi við hreyfingar á er­lendum mörkuðum en fjár­festar eru að endur­meta áhættu og óvissu vegna átaka í Miðaustur­löndum. Sam­kvæmt því sem fram hefur komið í er­lendum markaðs­yfir­litum lækkuðu helstu hluta­bréfa­vísitölur vestan­hafs veru­lega í opnun. Dow Jones-vísi­talan lækkaði um 2,31% við opnun (um 1.128 stig), S&P 500 lækkaði um 2,17% og Nas­daq um 2,36%. Í Evrópu voru markaðir einnig undir þungum þrýstingi. Evrópska Stoxx 600 lækkaði um 3% og þýska DAX-vísi­talan lækkaði um rúm 3%.

Share this article