Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Neikvæð viðbrögð á markaði við vaxta­hækkun

Read Full Article →

Hluta­bréf hafa lækkað í verði víða í Kaup­höll Ís­lands í morgun í fyrstu viðbrögðum markaðarins eftir að Seðla­banki Ís­lands hækkaði stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig. Úr­vals­vísi­talan hefur lækkað um tæp 1,4% þegar þetta er skrifað og hafanær öll félög á aðalmarkaði lækkað. Mesta lækkunin er á hluta­bréfa­verði Eim­skips, sem hefur lækkað um rúm 4,4%. Þar á eftir koma Skagi og Reitir, en hluta­bréf Skaga hafa lækkað um tæp 3,5% og hluta­bréf Reita um rúm 3,2%. Þá hefur hluta­bréfa­verð Kaldalóns og Kviku banka lækkað um tæp 3%. Hluta­bréfa­verð Amaroq Minerals og Sjóvár hefur einnig lækkað um rúm 2% í fyrstu viðskiptum dagsins. Minni lækkun sést meðal annars á hluta­bréfa­verði Sýnar, Skeljar, Ís­lands­banka og Arion banka. Hluta­bréf Ís­lands­banka hafa lækkað um tæp 1,8% og hluta­bréf Arion banka um 1,6%. Mest velta er í hluta­bréfum Reita, þar sem við­skipti nema um 47 milljónum króna. Þar á eftir koma Sjóvá með um 31 milljón króna veltu, Arion banki með um 28 milljónir, Eim­skip með um 23 milljónir og Kaldalón með um 22 milljónir króna. Markaðurinn virðist því hafa tekið vaxta­hækkun Seðla­bankans fremur illa og eru fjárfestar að endurmeta stöður sínar.

Share this article