Bankarnir þrír í Kauphöllinni, Íslandsbanki, Arion banki og Kvika bank, lækkuðu allir um 0,7-0,9% í viðskiptum dagsins í dag. Yfir helmingur af 931 milljónar króna veltu á aðalmarkaðnum var með hlutabréf Arion og Íslandsbanka. Gengi Íslandsbanka lækkaði um 0,75% í 226 milljóna króna veltu og stendur nú í 133 krónum á hlut. Gengi Arion lækkaði um 0,85% í 264 milljóna króna veltu og stendur nú í 174,5 krónum. Í nýrri fjármálaáætlun, sem var kynnt eftir lokun markaða á fimmtudaginn, var greint frá því að til stæði að afla viðbótarskatttekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum. Ekki var nánar tilgreint um umfang slíkra aðgerða né heldur nákvæmlega hvaða skatt væri um að ræða. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, upplýsti í aðsendri grein á Vísi sem birtist á laugardaginn að horft sé til þess að hækkun bankaskattsins eigi að skila ríkissjóði um 6 milljarða króna í nýjar tekjur á næsta ári. Sjá einnig Boða hærri skatta á fjármálafyrirtæki Hinn svonefndi bankaskattur er sérstakur skattur er lagður á fjármálafyrirtæki sem nemur 0,145% af heildarskuldum viðkomandi lögaðila yfir 50 milljörðum króna í lok hvers árs. Fjögur fjármálafyrirtæki fá þennan skatt álagðan og greiddu samtals 6,7 milljarða króna vegna rekstrarársins 2024. Reitir ekki lægri síðan í september Mesta breytingin var á gengi fasteignafélagsins Reita sem lækkaði um 3,5% í 127 milljóna króna veltu. Gengi Reita stendur nú í 110 krónum og hefur ekki verið lægra síðan í byrjun september. Til samanburðar fór gengi félagsins hæst í 131 krónu á hlut þann 6. mars síðastliðinn. Sé leiðrétt fyrir fyrri arðgreiðslu vegna rekstrarársins 2025 upp á 2,3 krónur á hlut (arðsviðmiðunardagur var 27. mars) hefur gengi félagsins lækkað um 14,3% í mánuðinum. Gera má ráð fyrir að lækkun á gengi Reita í dag megi rekja til umræddrar arðgreiðslu. Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um kom til skoðanaskipta milli Guðmundar Inga Jónssonar, stærsta einkafjárfestisins í hluthafahópi Reita, og stærsta hluthafans, Gildis lífeyrissjóðs vegna ólíkra sjónarmiða um val á stjórnarformanni fasteignafélagsins. Sjá einnig „Ég er ekki að fara að selja þessa hluti á einhverri útsölu“ Guðmundur sagði að hann hafi hugsað sér að minnka stöðu sína í Reitum frekar en það væri þó háð því að markaðsgengi hlutabréfa félagsins væri ásættanlegt.