Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá báðir að Seðla­bankinn hækki vexti

Read Full Article →

Greiningardeildir Landsbankans og Íslandsbanka spá því báðar að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka vexti í næstu viku um 0,25 prósentur, upp í 7,5%. Það yrði fyrsta vaxtahækkun Seðlabankans frá því í ágúst 2023. Hagfræðideild Landsbankans bendir á að raunstýrivextir hafi haldist óbreyttir í kringum 2,1% í febrúar þar sem verðbólga stóð í stað í 5,2% í mánuðinum. Hún birti í morgun verðbólguspá þar sem hún gerir ráð fyrir að verðbólga fari upp í 5,4% í mars. Sjá einnig Spá því að verðbólga fari úr 5,2% í 5,4% í mars „Sviptingar á alþjóðamörkuðum, þá helst hækkun olíuverðs vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum, hafa þó aukið verðbólguþrýsting og sérstaklega verðbólguvæntingar og við teljum líklegt að peningastefnunefnd horfi sérstaklega til þess við næstu ákvörðun og hækki því vexti,“ segir í hagsjá Landsbankans. Verðbólguvæntingar aukist talsvert í ár Bent er á að meðaltal helstu mælikvarða á verðbólguvæntingar hafi verið komið niður í 3,6% í október 2024 þegar peningstefnunefnd hóf vaxtalækkunarferilinn. „Þeir hafa haldist þar í gegnum megnið af vaxtalækkunarferlinum, en meðaltalið hefur hækkað það sem af er ári og er núna 3,9%.“ Þá hefur verðbólguálag á skuldabréfamarkaði til tveggja ára hækkað úr 3,4% í 4,5% frá því í byrjun desember. Sjá einnig Spáir vaxtahækkun í næstu viku Greining Íslandsbanka, sem birti spá sína um ákvörðun peningastefnunefndar í gær, sagði að versnandi skammtíma verðbólguhorfur og hækkandi verðbólguvæntingar muni líklega vega þyngra við vaxtaákvörðunina en kólnandi hagkerfi og vaxandi slaki á vinnu- og íbúðamarkaði.

Share this article