Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá því að stýrivextir hækki í næstu viku

Read Full Article →

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn í næstu viku, upp í 7,75%. Bankinn telur ekki útilokað að stýrivextir verði hækkaðir um 50 punkta en ólíklegt sé að vextir verði óbreyttir. „Verðbólga er enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafa reynst þrálátar. Að okkar mati mun það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars,“ segir í hagsjá Landsbankans. Greiningardeildin bendir á að við síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans um miðjan mars, þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 25 punkta, gaf peningastefnunefnd bankans sterklega til kynna að vextir yrðu hækkaðir á ný í maí. Þá hjaðnaði verðbólga úr 5,4% í 5,2% í apríl. „Verðbólga er því sú sama og þegar nefndin hittist síðast og raunstýrivextir nokkurn veginn þeir sömu miðað við liðna verðbólgu. Nefndin tók skýrt fram við síðustu ákvörðun að hún væri tilbúin að herða taumhaldið enn frekar og teljum við því líklegt að svo verði.“ Landsbankinn bendir á að ekki hafi tekist að ná niður verðbólguvæntingum. Þvert á móti hafi þær hækkað nokkuð síðan í desember, samhliða aukinni verðbólgu. Við slíkar aðstæður verði erfitt að líta framhjá tímabundnum verðhækkunum sem koma erlendis frá og er það vísað í hækkun eldsneytisverðs.

Share this article