Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans hækki stýrivexti um 0,25 prósentur, upp í 7,5%, í næstu viku. Það yrði þá fyrsta vaxtahækkun seðlabankans frá því í ágúst 2023. Greining Íslandsbanka telur að versnandi skammtíma verðbólguhorfur og hækkandi verðbólguvæntingar munu vega þyngra við vaxtaákvörðun Seðlabankans en kólnandi hagkerfi og vaxandi slaki á vinnu- og íbúðamarkaði. „Talsverðar líkur eru þó á að nefndin kjósi að halda vöxtum óbreyttum en gefa sterklega í skyn að vaxtahækkun liggi í loftinu í maí nema horfur breytist til batnaðar,“ segir í grein á vef Íslandsbanka. Greiningardeildin ítrekar að hún hefði viljað sjá peningastefnunefndina slá fastari tón í síðustu yfirlýsingu sinni í febrúar þegar hún hélt stýrivöxtum óbreyttum. Miðað við fundargerð nefndarinnar virðist sem hún hafi lítið rætt möguleika á hækkun vaxta. Seðlabankinn í þröngri stöðu Verðbólga mældist 5,2% í febrúar og var talsvert yfir spám greinenda. Nýjasta bráðabirgðaspá Íslandsbanka um verðbólgu sem bankinn birti í kjölfar verðbólgumælingar febrúarmánaðar hljóðar upp á 5,3% verðbólgu á fyrsta fjórðungi og 4,6% verðbólgu á öðrum fjórðungi þessa árs. Greiningardeildin segir að óvissa um skammtíma verðbólguhorfur hafi aukist síðustu vikur í kjölfar átaka milli Bandaríkjanna og Ísraels annars vegar, og Írans hins vegar sem hafa valdið miklum sveiflum á verði olíu og skyldra afurða. „Þótt færa megi rök fyrir því að seðlabankar eigi almennt að horfa að mestu fram hjá verðbólguskellum af þessum toga hefur Seðlabanki Íslands minna svigrúm en seðlabankar nágrannalanda til þess arna þar sem kjölfesta verðbólgumarkmiðsins er talsvert veikara hér á landi en gerist og gengur í nágrannalöndunum. Auk þess hafa líkur á að forsenduákvæði kjarasamninga um verðbólgu í vor og sumar bresti aukist. Það setur bankann í enn þrengri stöðu.“ Í Viðskiptablaðinu er að finna niðurstöður markaðskönnunar. Rumlega helmingur þátttakenda í könnun blaðsins myndi leggja til óbreytta stýrivexti á næsta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands sem fer fram í næstu viku. Sjá einnig Öll vötn falla til óbreyttra vaxta