Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Spáir stýrivaxtahækkun

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 11.3.2026 | 12:23 Spáir stýrivaxtahækkun Gangi spáin eftir munu meginvextir seðlabankans hækka í 7,5 prósent. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að Seðlabanki Íslands hækki stýrivexti um 0,25 prósentustig við næstu vaxtaákvörðun peningastefnunefndar bankans 18. mars. Gangi spáin eftir munu meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, hækka í 7,5 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar segir að versnandi skammtímaverðbólguhorfur og hækkandi verðbólguvæntingar muni vega þyngra í mati peningastefnunefndar en kólnandi hagkerfi og vaxandi slaki á vinnu- og íbúðamarkaði. Greiningardeildin rekur varnagla og segir samt sem áður talsverðar líkur á að peningastefnunefndin kjósi að halda vöxtum óbreyttum en gefur sterklega í skyn að vaxtahækkun liggi í loftinu í maí nema horfur breytist til batnaðar. Frétt af mbl.is Sjá fram á vaxtalækkunarhlé Rólegri en efni stóð til „Í febrúar ákvað peningastefnunefndin einum rómi að halda stýrivöxtum óbreyttum þrátt fyrir vaxandi verðbólgu frá nóvemberákvörðun nefndarinnar. Raunar þótti okkur, eins og ýmsum fleirum, nefndin vera rólegri í febrúar en efni stóð til varðandi nýlega þróun verðbólgu og verðbólguvæntinga. Eftir á að hyggja hefði verið heppilegra að sleginn hefði verið fastari tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar þá enda hafa horfur síst batnað síðan. Þá virtist fremur lítið hafa verið rætt um möguleikann á hækkun vaxta ef marka má fundargerð febrúarfundanna þótt vaxtahækkun hafi vissulega borið á góma,“ segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Ætlar ekki að hika við að hækka vexti Undirliggjandi verðbólguþrýstingur Í spá sinni bendir greiningardeild Íslandsbanka á að verðbólga hafi aukist frá vaxtaákvörðuninni í nóvember og þótt hluta hækkunarinnar í byrjun árs megi rekja til breytinga á opinberri gjaldtöku af nýjum bifreiðum hafi verðhækkanir verið á tiltölulega breiðum grunni, sem bendi til að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé enn mikill. Framsýn leiðsögn peningastefnunefndar hljóðaði þannig: „Frekari ákvarðanir um lækkun vaxta bankans eru háðar því að skýrar vísbendingar komi fram um að verðbólga sé að hjaðna í 2½% markmið bankans. Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“ Greiningardeildin segir að ráða megi af orðum peningastefnunefndar að grunnsviðsmynd hennar hafi enn verið sú í febrúar að fremur væri spurning um hvenær en hvort vextir myndu lækka frekar. „Enn og aftur voru þau skilaboð ekki heppileg að okkar mati í ljósi stöðunnar þá og þróunar síðan.“ Á heildina litið telur greiningardeildin sterkari rök með vaxtahækkun nú en óbreyttum vöxtum. Í það minnsta þyrfti mun harðari tónn en í undanförnum ákvörðunum til að fylgja óbreyttum vöxtum þar sem vaxandi líkur á vaxtahækkun í náinni framtíð væru nefndar. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Tilfinningar og tár á stjórnarheimilinu Sigurður Már Jónsson Menntamenn og hatur í garð heimahaganna Fleira áhugavert Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Segja víðtækar árásir hafnar Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Musk metinn á 105 billjónir króna Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Rósa verkefnastýra Jafnvægisvogar Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Æfa samskipti með gervigreind Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Musk metinn á 105 billjónir króna Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Rósa verkefnastýra Jafnvægisvogar Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Æfa samskipti með gervigreind Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Heildarlosun Landsvirkjunar jókst 2025 Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Einn dalur verðmætari en hundrað Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Þorsteinn kjörinn formaður SI Horfur breytast úr stöðugum í jákvæðar Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Pistlar » Sigurður Már Jónsson Tilfinningar og tár á stjórnarheimilinu Sigurður Már Jónsson Menntamenn og hatur í garð heimahaganna Fleira áhugavert Kreppir að á tónleikamarkaði Vilja aukið samstarf í varnarmálum Bandaríkin ráðast til atlögu vegna tundurdufla Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Musk metinn á 105 billjónir króna Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Rósa verkefnastýra Jafnvægisvogar Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Æfa samskipti með gervigreind Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Musk metinn á 105 billjónir króna Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Rósa verkefnastýra Jafnvægisvogar Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind Æfa samskipti með gervigreind Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Heildarlosun Landsvirkjunar jókst 2025 Hirtu bestu bitana úr þrotabúi BrewDog Bauð RÚV 100 þætti af Latabæ 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Einn dalur verðmætari en hundrað Sif nýr sviðsstjóri hjá Hugverkastofunni Andstaða við Evrópusambandið fer vaxandi Þorsteinn kjörinn formaður SI Horfur breytast úr stöðugum í jákvæðar Lindex opnar í stað Útilífs í Smáralind

Share this article