Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

8% hækkun eftir 10 milljarða viðbótararðgreiðslu

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 1,06 prósent í Kauphöll Íslands í dag og endaði í 2.813,67 stigum. Mest hækkuðu bréf Kviku banka, um 8,20 prósent, en fyrr í dag greindi bankinn frá fyrirhugaðri tíu milljarða króna viðbótararðgreiðslu . Þá hækkuðu einnig bréf Oculis um 3,40 prósent, Amaroq Minerals um 2,91 prósent og Haga um 2,50 prósent. Hlutabréf Nova lækkuðu mest, eða um 1,08 prósent, en einnig lækkuðu bréf Alvotech um 1,02 prósent og Arion banka um 0,77 prósent. Mesta veltan á aðalmarkaði var með bréf Íslandsbanka, eða um 1,6 milljarðar króna. Þar á eftir komu viðskipti með bréf Haga og Arion banka.

Share this article