Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um tæp 1,7 prósent í dag og stóð í 2.688,32 stigum við lokun. Seðlabanki Íslands hækkaði vexti í morgun og svo virðist sem vaxtahækkunin hafi slegið á bjartsýni íslenskra fjárfesta en lækkanir dagsins voru víðtækar og náðu flestra félaga á markaðnum. Eimskip leiddi lækkanir dagsins. Bréf félagsins féllu um tæp 4,5 prósent og lokuðu í 248 krónum. Viðskipti með bréfin námu um 30 milljónum króna. Hlutabréf málmleitarfélagsins Amaroq Minerals lækkuðu næstmest, eða um tæp 3,5 prósent, og enduðu í 168 krónum. Velta með bréf félagsins nam um 47 milljónum króna. Þá lækkuðu bréf Skaga einnig um tæp 3,5 prósent og lokuðu í 17 krónum en hafa ber í huga að það er arðsleysisdagur hjá Skaga í dag. Hlutabréfaverð Beru, áður Ölgerðin, féll um rúm 3,2 prósent og var dagslokagengi 14,7 krónur. Velta nam um 59 milljónum króna. Reitir lækkuðu sömuleiðis um rúm 3,2 prósent og lokuðu í 120 krónum, en þar nam velta um 205 milljónum króna. Sýn lækkaði um tæp 3 prósent í 103 krónur, en viðskipti með bréf félagsins námu um 8 milljónum króna. Bréf Sjóvár féllu um tæp 2,6 prósent í 37,8 krónur, í um 75 milljóna króna veltu. Festi var meðal veltuhæstu félaga dagsins. Bréf félagsins lækkuðu um tæp 2,2 prósent og lokuðu í 312 krónum en velta nam um 339 milljónum króna. Kaldalón lækkaði jafnframt um tæp 2,2 prósent í 26,8 krónur, í um 55 milljóna króna viðskiptum. Bréf JBT Marel lækkuðu um tæp 2,1 prósent og enduðu í 16.300 krónum. Velta með bréfin nam um 9 milljónum króna. Heimar lækkuðu um tæp 2 prósent í 35,6 krónur, í um 55 milljóna króna veltu. Bréf Kviku lækkuðu um tæp 1,8 prósent og lokuðu í 17,9 krónum, í um 254 milljóna króna viðskiptum. Arion banki lækkaði um 1,6 prósent í 185 krónur, í um 308 milljóna króna veltu. Hampiðjan féll um tæp 1,6 prósent í 94,5 krónur, í um 22 milljóna króna viðskiptum, og bréf Símans lækkuðu um tæp 1,5 prósent og enduðu í 12,9 krónum.