Úrvalsvísitalan OMXI lækkaði um 2,18% í dag og heildarvelta nam 3,4 milljörðum króna. Þegar viðskipti í Íslandsbanka eru tekin út, þar sem dagurinn var arðleysisdagur, stóð eftir um 2,3 milljarða króna velta á markaðnum og nær öll félög voru að lækka. Mesta velta dagsins var í Íslandsbanka, alls 1,1 milljarður króna, en í dag var arðleysisdagur bankans, það er fyrsti dagur sem hlutabréfin eru seld án réttar til arðs. Mesta velta dagsins var í Íslandsbanka, alls 1,1 milljarður króna, en í dag var arðleysisdagur bankans, það er fyrsti dagur sem hlutabréfin eru seld án réttar til arðs. Hlutabréfaverð bankans lækkaði um 6,16% en það er ekki hefðbundin markaðslækkun enda endurspeglar hún að verulegu leyti að arðurinn er farinn út úr verðinu. Af sömu ástæðu er líka eðlilegt að horfa sérstaklega á veltuna án Íslandsbanka þegar reynt er að lesa í raunverulega virkni markaðarins. Að frádreginni veltu bankans nam velta annarra félaga um 2,3 milljörðum króna. Það er raunar undir meðalveltu febrúarmánaðar, sem var um 2,8 milljarðar króna á dag, og töluvert undir janúar, þegar meðalveltan var rúmir 4 milljarðar. Þótt markaðurinn hafi því ekki alveg dottið í dvala var dagurinn engu að síður fremur þunnur í sniðum, sérstaklega miðað við breiddina í lækkununum. Næstmesta velta dagsins var í Arion banka, 668 milljónir króna, en bréf bankans lækkuðu um 3%. Þar á eftir kom Eimskip með 299 milljóna króna veltu og tæpa 6% lækkun. Gengi Reita féll svo um rúm 4%. JBT Marel hækkaði þó um 2,5% á meðan Icelandair fór upp um 1,40% og Síminn. Lækkanir dagsins voru þó á breiðum grunni í fremur litlum viðskiptum og fátt benti til þess að kaupendur hefðu mikinn þrótt til að stíga inn í lækkunina.