Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,65 prósent í dag og endaði í 2.682 stigum, eftir að alþjóðleg markaðsviðhorf héldu áfram að batna í kjölfar vopnahlésfregna frá Miðausturlöndum. Erlendis einkenndust markaðir af sambærilegri þróun sem lýsa má sem varfærinni bjartsýni Hér heima var hækkunin nokkuð breið. Hlutabréfaverð Símans hækkaði um tæp 4% á meðan Alvotech hækkaði um 2,5%. Gengi Icelandair hækkaði um rúm 2% líkt og gengi Eikar. Þá hækkaði gengi Hampiðjunnar, Sjóvá, Eimskips og Íslandsbanka um rúmt 1%. Heildarvelta á markaði nam 2,8 milljörðum króna. Þróunin rímar að nokkru leyti við það sem sást á erlendum mörkuðum. Á miðvikudag hrundi olíuverð og hlutabréfamarkaðir hækkuðu víða eftir að Donald Trump boðaði tímabundið vopnahlé við Íran. Í dag voru markaðir enn jákvæðir, en hækkunin var mun hóflegri þar sem fjárfestar biðu frekari skýrleika um hvort vopnahléið myndi halda og hvort samningar um Hormússund skiluðu varanlegri niðurstöðu.