Hlutabréfaverð Amaroq hækkaði um 5,9% í hálfs milljarðs króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Gengi félagsins stendur í 198 krónum og hefur nú hækkað 16,5% frá því á fimmtudaginn síðasta. Málmleitarfélagið, sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum á Grænlandi, greindi í morgun frá því að áætli að gullframleiðsla Nalunaq-námunnar í ár verði 25–35 þúsund únsur. Til samanburðar nam gullframleiðsla félagsins í fyrra um 6.600 únsum. Sjá einnig Allt að fimmfalda gullframleiðslu milli ára Þá áætlar Amaroq að rekstrarkostnaður með viðhaldsfjárfestingum (e. all-in sustaining cost - AISC) verði í á bilinu 1.250-1.450 dalir á únsu á fjórða ársfjórðungi. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,1% í 3,9 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Auk Amaroq hækkaði gengi hlutabréfa Oculis, Skeljar fjárfestingarfélags og Iceland Seafood um 3% eða meira í dag. Sjá einnig Markaðsvirði Oculis komið yfir 200 milljarða Gengi JBT lækkað um 5% frá uppgjöri Hlutabréfaverð JBT lækkaði um 2% í tæplega 250 milljóna króna í dag og hefur nú lækkað um 5% frá birtingu ársuppgjörs eftir lokun markaða á mánudaginn. Gengi Icelandair lækkaði næst mest eða um 1% í hundrað milljóna króna veltu og stendur nú í 0,77 krónum á hlut. Til samanburðar fór dagslokagengi Icelandair lægst í 0,74 krónur á hlut þann 4. desember síðastliðinn.